Viðskipti erlent

NYSE útilokar ekki yfirtöku á LSE

John Thain, forstjóri kauphallarinnar í New York í Bandaríkjunum.
John Thain, forstjóri kauphallarinnar í New York í Bandaríkjunum. Mynd/AFP

Stjórn bandarísku kauphallarinnar í New York (NYSE) er enn opin fyrir möguleikanum á yfirtöku kauphallarinnar í Lundúnum í Bretlandi (LSE) . Þetta sagði John Thain, forstjóri NYSE á morgunverðarfundi á ráðstefnu Alþjóða efnahagsstofnunarinnar World Economic Forum sem fram fer í Davos í Sviss.

NYSE vinnur nú að samruna við samevrópska hlutabréfamarkaðinn Euronext og hyggst ljúka honum áður en frekari samrunar verði á dagskrá, að sögn Thains. Hann benti þó á að mistakist bandaríska hlutabréfamarkaðnum Nasdaq, sem vinnur að óvinveittri yfirtöku á LSE, að ná markmiði sínu, þá muni NYSE láta til skarar skríða. Samruni markaða beggja vegna Atlantsála komi öllum til góða, að hans sögn.

Í dag rennur út frestur Nasdaq til að hækka yfirtökutilboð sitt í útistandandi hluti í LSE. Tilboðið hljóðar upp á 2,7 milljarð punda, jafnvirði rúmlega 370 milljarða íslenskra króna. Stjórn LSE hefur ítrekað hafnað tilboðu Nasdaq á þeim forsendum að það sé oft lágt og endurspegli ekki framtíðarhorfur markaðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×