Billjónsdagbók 4.11. Jón Örn Marínósson skrifar 4. nóvember 2007 00:01 OMXI15 var 8.001,60, þegar síminn vakti mig skelþunnan í eksklúsífu svítunni á Hôtel Hermitage í Mónakó, og Dow Jones var 13.930,01 þegar ég heyrði í gegnum höfuðkvalirnar að Iwaunt Moore var að hringja frá útrásarstöðinni sem við fengum Össur til að opna í Sungaipakning gegn því að við redduðum samruna á milli Össurar og Susilo Bambang Yudhoyono yfir bolla af te. Mér leið eins og verðkönnunarkjöti; mér var svo flökurt í símanum. Iwaunt Moore bað mig að skila kveðju til mísster Skarpjenson frá Susilo Bambang Yudhoyono og þakka fyrir myndirnar sem mísster tók í partíinu og sendi á meilnum. Susilo segði að míníster Ossúr væri talandi dæmi um markaðsvænan hugmyndafræðilegan samruna. Íslenskt prívatkapítal þyrfti ekki að hafa áhyggjur út af dsjíóþörmal proffitt á meðan það hefði orkubolta eins og Skarpjensson til að selja útrásarfélög sem væru ekki til. Mestu skipti að þær væru til, Indónesía og Sudurnesía. Ég var að fá upp í háls af Bambang og Skarpjenson þegar Iwaunt kom sér loks að efninu: „And.. gess vott?!!" hvíslaði hann. Ég missti alkaseltserinn. Var þessi Svandís að hóta einhverju?! Nei - Iwaunt Moore tilkynnti að þotan mín, MÍN PRÆVEIT PÖRSONAL DSJETT, yrði tilbúin til afhendingar klukkan 11:30 grínítsj míntæm á London Sittí Erport 16. dí sember. Ég gleymdi strax bæði þynnkunni og Svandísi. Ég hef ekki fundið svona upphafningu síðan ég náði í Sjálfsmínbanka. Verst að ég þekki engan á Hôtel Hermitage til að fagna með mér. Það hefði til dæmis verið munur að hafa Óla og Dorritt til að skála með sér fyrir nýju þotunni í Krug Clos du Mesnil sem er ágætt til heimabrúks. En því miður. Óli, sem segir að megi aldrei slaka á í sjálfstæðisbaráttunni og er að berjast fyrir sjálfstæðinu í eksklúsívu svítunni við hliðina á mér, varð að fara út í snekkju að hitta ólígarka. Ég ætla samt að hringja á rúm sörvis. Ég sad áðan einn í gvöldröggrinu údá svulum. Ég er orðin hálfullur av Krú Kló. É var a horfa yvir Skver Bómar sí o immitt a huxa hva mar orðinn gasalega al.. al... alþjóleur o av háum standard. Skál, þodukall! Ísland evrum skori!! É vill... é fæ... þig... Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Örn Marinósson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun