Nokkur framfaramál Bergsteinn Sigurðsson skrifar 2. nóvember 2007 00:01 Út er komin hin klassíska barnabók Tíu litlar skipamellur eftir Metúsalem frá Munaðarnesi, eitt ástælasta skáld þjóðarinnar. Hver man ekki eftir vísunum um gálurnar tíu sem týna tölunni ein af annarri í sprútttunnum, nælonsokkabuxnasnörum og ilmvatnsfnyk á slippstöð suður með sjó? Innblásinn af Ástandinu setti Metúsalem þessa kviðlinga saman á fimmta áratug síðustu aldar til að brýna fyrir litlum tátum hvernig getur farið ef þær eru of útbærar á blíðu sína í þeim tilgangi að ná sér í tyggigúmmí og annan lúxusvarning sem bandarískir dátar og togarasjómenn hafa upp á að bjóða. Vísurnar koma öllum í sólskinsskap og hafa haft ofan af fyrir nokkrum kynslóðum skólabarna en einhverra hluta vegna verið ófáanlegar um langt skeið. Íslenska þjóðkirkjan rétti samkynhneigðum sáttahönd á prestastefnu þegar komist var að þeirri niðurstöðu að leyfa prestum sem það vilja að staðfesta greftrun homma og lesbía - í vígðri mold og allt. Talsmenn þjóðkirkjunnar telja það aftur á móti of stórt skref að tala um útfarir samkynhneigðra eins og hverja aðra jarðarför. Félagar úr stétt kristilegra góðborgara telja enn fremur að það samræmist ekki íslenskri málvenju að orðin jarðarför og lesbía og/eða hommi komi fyrir í sömu andrá. Í viðleitni sinni til að brúa bilið milli sannkristinna og samkynhneigðra hafa þeir aftur á móti stungið upp á nokkrum orðum sem nota mætti í stað staðfestra greftrana, til dæmis hommaför og dyslesbía. Viðskiptaráðherra hefur ákveðið að afnema vöru- og stimpilgjöld. Hann telur aftur á móti ekki rétt að gera það í einu vetfangi heldur í nokkrum áföngum. Í fyrsta lagi er það gert til að hlífa neytendum, sem munu að öllum líkindum ekki ráða við óheft aðgengi að handsápu, kakódufti og svampbotnatertum á svo lækkuðu verði að í sumum tilfellum stappa kjörin nærri raunvirði. Í öðru lagi þykir sanngjarnt að kaupmenn, og aðrir sem hag hafa af, fái að aðlagast breyttu kerfi og auka álagningu smátt og smátt til að vega upp það tekjutap sem… ja, einhver annar en þeir yrði fyrir við þessa breytingu. Smyrji þeir öllu á í einu er hætt við að til átaka komi milli kaupmanna og neytenda - reyndar aðallega í formi langra og gífuryrtra lesendabréfa - en sýnt þykir að yrðu öllum til armæðu og engum til hagsbóta. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bergsteinn Sigurðsson Mest lesið Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson Skoðun Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun Enginn skilinn eftir á götunni Dagmar Valsdóttir Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta taka sig alvarlega? Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir Skoðun
Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir Skoðun
Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun