Fjölbreytt hönnun í Forynju 18. ágúst 2007 01:00 Sara María ásamt starfsfólki en þau hafa unnið hörðum höndum undanfarna daga við að koma búðinni í stand. Opnun verður í dag.
Forynja nefnist ný búð sem Sara María Eyþórsdóttir opnar í dag en Sara er oftast kennd við búðina Nakta apann sem hún rekur einnig. Í Forynju verður margt spennandi í boði og þar á meðal heimilisvörur eins og koddar og rúmföt sem hönnuð eru af Söru og hennar aðstoðarteymi. „Það verður opnun hérna í dag, tónlistaratriði og léttar veitingar í boði,“ segir Sara en nýja búðin er í Tryggvagötu 16, þar sem verslunin Má Mí Mó var áður til húsa. „Við verðum með okkar eigin hönnun eins og hefur verið í Nakta apanum auk nýju heimilisvaranna. Einnig verðum við með barnaföt frá hönnuðunum Önnu Rún og Signýju sem báðar eru útskrifaðar úr Listaháskóla Íslands. Svo verðum við með skartgripi frá okkur úr plexigleri en það er á stefnuskránni að bæta silfurskartgripum við.“ Nakti apinn hefur vakið athygli fyrir líflega innanhússhönnun og segir Sara Forynju líka ætla að taka á sig hressilega mynd. „Í þessari búð er markhópurinn eldri svo hún verður aðeins öðruvísi. Það er ekki ennþá komin mynd á hana, ætli það gerist ekki bara síðasta daginn.“ Búðin opnar klukkan sex og eru allir velkomnir.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira