Andri Snær tekur púlsinn 18. ágúst 2007 07:45 Andri Snær tekur púlsinn á náttúrusýn í Listasafni Íslands í kvöld.
Andri Snær Magnason rithöfundur leiðir gesti í kvöld um sali Listasafns Íslands en þar er nú uppi sýningin Ó-náttúra. Má búast við að skáldið fari víða í hughrifum um hvað fyrir augu ber. Andri er þaulvanur greinandi og hefur farið víða í skáldskap sínum, jafnan verið á sínum sjónarhóli. Andri Snær er þekktur fyrir óvenjuleg sjónarhorn á lífið og tilveruna en segja má að sjónarhorn listamanna á sýningunni séu afar ólík því þar má sjá verk eftir 51 listamann, allt frá Kjarval til Katrínar Sigurðardóttur. Ó-náttúra er sýning á verkum úr safneign Listasafns Íslands. Sýningin fjallar um náttúruna í ólíkum myndum. Náttúran er gjarnan skilgreind með þrengsta móti sem hlutlægt umhverfi manna og málleysingja. Sýningin býður gestum Listasafns Íslands að endurskoða þá skilgreiningu og minnast þess að náttúran nær ekki síður til innri veruleika okkar, hvatalífs, ósjálfráðra viðbragða og hömlulausra athafna en ytri, ósnortinna aðstæðna - eða þeirra aðstæðna í landi sem við höfum rofið með einhverjum hætti, bæði fyrr og síðar. Sýningin leiðir í ljós að erfitt er að skilgreina jafn yfirgripsmikið fyrirbæri og náttúruna, eða greina hana frá því sem kalla mætti ónáttúrulegt í merkingunni gervilegt eða tilbúið. Andri leggur af stað í göngutúrinn um Ó-náttúru kl. 21 og eru allir velkomnir.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira