Billjónsdagbók 12.8. 12. ágúst 2007 00:01 OMXI15 var 8.280,24, þegar ég setti upp nýju 55.000 króna hlaupaskóna með metangashælpúðum og títaniljafjöðrun, og Nasdaq var 2.547,33 þegar ég hafði hlaupið tíu kílómetra og fannst ég jafnnálægt hruni og friðuðu grásleppuhjallarnir við Ægisíðu. Ég staulaðist niður í fjöru og tók pásu á bak við stein. Púlsinn var 178. Ég hef ekki verið nógu duglegur í ræktinni. Það er vika í maraþonið. Ég verð að fá meiri stamínu. Liðið í Þeirrabanka fær ekki að njóta þeirrar ánægju á laugardaginn að sjá stjórnarformann Sjálfsmínbanka síga niður eftir nokkra kílómetra á metangasskóm með títaniljafjöðrun. Ég þorði ekki að hlaupa meira. Ég tók það rólega á bak við steininn, náði púlsinum niður, hringdi í einkó og bað hann að koma á Róvernum. Ég dundaði mér við að horfa yfir á Bessastaði á meðan ég beið. Ég sá að Dorrit var komin út að hengja upp þvott. Það var fullt af fólki að æfa fyrir maraþonið á Ægisíðunni. Jafnvel Baddi í ÓP-fjárfestingum kom gjögtandi í skræpóttum sportgalla, maður sem verður andstuttur af því að taka upp flösku af Romanée Conti. En heilbrigður lífsstíll gengur fyrir öllu öðru. Baddi tölti þetta sisona með þjáningarsvip og handfrjálsan búnað. Það er svo mikil ókyrrð á markaðnum. Ég ætla að hlaupa með handfrjálsan í fyrramálið. Það hringdi í dag einhver kvenmaður frá borginni og spurði hvort ég væri ekki til í að hafa opið hús á Smáragötunni á menningarnótt og bjóða gestum og gangandi upp á vöfflur. Ég er ennþá með verk í bringspölunum eftir hláturskastið. Heldur fólk virkilega að maður, sem er áberandi í tekjublöðum Frjálsrar verslunar og Mannlífs, fari að standa persónulega yfir vöfflujárni og hleypa inn á sig alls konar organískt trúuðu menningarpestóliði sem er með það á heilanum að það þurfi að „glæða mannlíf í miðbænum". Ég veit ekki hvað er að gerast í Reykjavík. Þegar ég var strákur átti ég bók um „pönnukökukónginn". Núna á maður heima í bæ þar sem er „vöffluborgarstjóri". Hjallastefnan grefur svona um sig. Annars er skrýtið að þessum tekjublöðum ber ekki saman um hvað ég hafði í tekjur í fyrra. Það munar 25 árslaunum kennara á mánuði. Bæði blöðin segjast með rétta tölu. Ég kann ekki að reikna út hvað ég var með í tekjur. Vildi bara að endurskoðandinn gæfi örugglega meira upp á mig á framtalinu en við héldum að stjórnarformaðurinn í Þeirrabanka vildi láta gefa upp á sig. Svona misræmi er óþolandi. Ég læt Sjálfsmínbanka neita blaðinu með lægri töluna um lengri greiðslufrest. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Örn Marinósson Mest lesið Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir Skoðun
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun