Syndug hjörtu á Rauðasandi 27. júlí 2007 03:45 Bókaútgáfan Bjartur gaf út skáldsögu Gunnars Gunnarssonar, Svartfugl, í vikunni.
Bjartur útgáfa gaf út tvær skáldsögur Gunnars Gunnarssonar, Svartfugl og Aðventu, nú í vikunni. Í tilefni af útgáfu Svartfugls verður boðið upp á menningardagskrá að Saurbæ á Rauðasandi annað kvöld. Dagskráin ber titlinn „Við klukknahljóm syndugra hjarta“. Svartfugl fjallar um Eyjólf kapelán og ástríðuglæpi Bjarna og Steinunnar á Sjöundá. Sögulegur bakgrunnar hennar eru Sjöundarármorðin, sem teljast eitthvert frægasta morðmál Íslandssögunnar. Sagan Svartfugl er stundum sögð vera fyrsta alvöru íslenska glæpasagan, þar sem réttarrannsókn spinnur söguþráðinn. Í henni er þó jafnframt dregin upp skörp mynd af íslensku samfélagi um aldamótin 1800, stéttaskiptingu þess, blindri réttvísu kirkju, kóngs og embættismanna og harðneskjunni sem alþýðan bjó við. Á laugardag mun Gunnar Björn Gunnarsson flytja erindi um Svartfugl, og leikararnir Jón Hjartarson, Þorsteinn Gunnarsson og Valgerður Dan lesa valda kafla úr bókinni. Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari flytur verkið Lethe eftir Atla Heimi Sveinsson, og séra Sveinn Valgeirsson flytur hugvekju. Jafnframt verður boðið upp á léttar veitingar. Dagskráin er samvinnuverkefni Bókaútgáfunnar Bjarts, Gunnarsstofnunar og Ferðafélags Íslands. Aðstandendur vekja athygli á góðu tjaldstæði á staðnum.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira