Í fótspor Möðruvallamunka 27. júlí 2007 00:30 Frá miðaldamarkaði á Gásum í fyrra
Minjasafnið á Akureyri, í samvinnu við Amtmannssetrið á Möðruvöllum, stendur fyrir sögugöngu frá miðaldakaupstaðnum Gásum að Möðruvöllum í Hörgárdal. Gangan hefst á því að Kristín Sóley Björnsdóttir, verkefnisstjóri Gásaverkefnisins, veitir gestum leiðsögn um Gásakaupstað. Þá tekur sr. Gylfi Jónsson við leiðsögninni. Hann mun á leiðinni til Möðruvalla draga fram hápunkta úr verki Davíðs Stefánssonar, Munkarnir á Möðruvöllum. Að því er segir í fréttatilkynningu má sjá mörg stef sem snerta nútímamanninn í verki Davíðs, þó að þeim sé gefinn staður í lífi munkanna á Möðruvöllum. Valdgræðgi og auðsöfnun blasa við í verkinu, og eins eiga sýndarmennska og svik sinn sess í lífinu á Möðruvöllum. Göngunni lýkur í nýuppgerða leikhúsinu á Möðruvöllum, þar sem vöfflur og kaffi bíða göngufólks. Gangan tekur um fjóra tíma, en þátttökugjald er 1000 krónur. Göngufólki er bent á að búa sig eftir veðri, og hafa nesti meðferðis. Að göngu lokinni verður boðið upp á rútuferð að upphafsstað á Gásum.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira