Tónlist

Ofar en Ozzy og Winehouse

Hafdís þótti standa sig ákaflega vel á tónleikunum í Svíþjóð.
Hafdís þótti standa sig ákaflega vel á tónleikunum í Svíþjóð. mynd/johan eckerström

Tónlistarkonan Hafdís Huld hefur fengið mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína á tónlistarhátíðinni Hultsfred í Svíþjóð sem var haldin á dögunum. Hultsfred er ein stærsta tónlistarhátíðin á Norðurlöndunum og í ár komu 160 hljómsveitir frá öllum heimshornum þar fram.

Í blaðinu Nojesguiden var birtur listi yfir fimm bestu tónleikana og lenti Hafdís þar í efsta sæti. Fyrir neðan hana voru þekkt nöfn á borð við Ozzy Osbourne, 50 Cent, Amy Winehouse, Korn og Manic Street Preachers. Lenti Winehouse til að mynda í fimmta sæti á listanum. „Þetta var heillandi blanda af krúttlegheitum, fínum poppperlum og skemmtilegum ukulele-leik,“ sagði í blaðinu. Að auki líkti blaðamaðurinn plötu Hafdísar, Dirty Paper Cup, við jarðarberjatínslu sumarsins.



Sænska dagblaðið Östran setti tónleika Hafdísar á topp tíu hjá sér auk þess sem frammistaða hennar fékk fjóra af fimm í eink­unn á netsíðunni sydmark.se.



Tónlist Hafdísar Huldar er gefin út af Playground music á Norðurlöndunum og er stefnt á að hljómsveit hennar fari þangað í tónleikaferðalag á haustmánuðum. Fyrstu tónleikar Hafdísar á Íslandi verða í Salnum Kópavogi þann 9. ágúst næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×