Tónlist

Fýla í röppurunum

Kanye West og 50 Cent eru í fýlu út í hvor annan en þeir ætla báðir að gefa út plötur þann 11. september einhverra hluta vegna. Það var 50 Cent sem ákvað þetta fyrst og varð því vitanlega fúll þegar Kanye frestaði sinni plötu, Graduation, fram á þennan dag.

 

texti fylgir

Það hefur aldrei verið sérstaklega heitt á milli kappanna en Kanye segist viss um að selja fleiri plötur en 50 Cent og þá verður hann konungurinn í þeim heimi. Og þó svo að hann selji færri plötur þá skiptir það hann ekki miklu máli þar sem allir búast við meiri plötusölu af Fifty en hans plata nefnist Curtis. Sumir búast jafnvel við því að ráðamenn Fiftys leki plötunni á netið svo hún komi ekki út sama dag og plata Kanyes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×