Magnús Pálsson minnist Þórarins Nefjólfssonar í i8 13. júlí 2007 04:00 Bætir „enn einni minningunni“ við í Galleríi i8 á Klapparstíg. Hann segir menningararfinn þrengja sér inn í verk sín og framkvæmdir, enda sé hann ríkur þáttur í allri hans tilvist.
Í gær opnaði Magnús Pálsson athyglisverða sýningu í Galleríinu i8 á Klapparstíg 33. Sýningin mun standa til 18. ágúst næstkomandi og ber yfirskriftina Minning Þórarins Nefjólfssonar. „Frá unga aldri hefur setið í mér sagan af Þórarni og viðskiptum hans við Noregskonung,“ segir Magnús. „Fyrr á árum gerði ég iðulega myndlistarverk í minningu persóna, atburða og fyrirbæra. Þar á meðal eru t.d. Minning Njálsbrennu, Minning Írafells-Móra og Minning fjallaþokunnar. Ég leyfi mér nú að bæta enn einni minningunni við, nefnilega Minningu Þórarins Nefjólfssonar.“ Á sýningunni sýnir Magnús skúlptúra og myndbönd. „Nýlega var ég spurður hvers vegna menningararfinn bæri svo oft fyrir í verkum mínum. Ég mun hafa svarað því sem svo að þetta væri ekki með ráðum gert heldur sé þessi arfur svo ríkur þáttur í allri minni tilvist og vitundarlífi að hann þrengi sér óboðinn inn í verk mín og framkvæmdir. Þessa skýringu endurtek ég gjarnan nú.“ Samtímis sýningu Magnúsar mun Unnur Mjöll S. Leifsdóttir sýna verk sitt Með hundshaus undir stiganum. Unnur stundaði nám í myndlist við Hunter College í New York og Listaháskóla Íslands en þaðan útskrifaðist hún árið 2005 með BA-gráðu frá myndlistardeild. Unnur Mjöll hefur skapað sér og list sinni vettvang bæði í New York og Seoul. Hún hefur einnig sýnt reglulega á Íslandi m.a. í Nýlistasafninu, Gallery Kling og Bang og Gallery Suð Suð Vestur. Gallerí i8 er opið þriðjudaga-föstudaga frá kl. 11-17 og á laugardögum frá kl. 13-17.
Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Lada Sport okkar tíma Lífið samstarf Var farin að fá kvíðaköst þegar dóttirin bað um að fara í göngutúra Lífið Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira