Barcelona vill halda Eiði Smára 6. júlí 2007 02:45 Er á Íslandi þessa stundina þar sem hann æfir vel. nordicphotos/afp
Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, greindi frá því í gær að Barcelona vildi halda landsliðsfyrirliðanum í sínum röðum. Þrálátur orðrómur hefur verið um að Eiður sé á leið aftur til Englands en hann hefur alltaf sagst vilja vera áfram í herbúðum Barcelona. Þar sem viljinn er beggja vegna eru litlar líkur á því að Eiður Smári fari í sumar. „Þeir (Barcelona) sögðu, „ef þú vilt glaður vera hér áfram, viljum við gjarnan að þú verðir það“,“ sagði Arnór við Sky-fréttastofuna í gær. Arnór sagði einnig að hann hefði ekki rætt við nein félög um hugsanleg kaup á Eiði Smára. Eiður er staddur á Íslandi þessa stundina og sagði Arnór að Eiður hefði í nógu að snúast. „Hann er mjög ákveðinn, hann er að æfa á fullu hérna á Íslandi í fríinu sínu og hann ætlar að vera vel undirbúinn fyrir næsta tímabil,“ sagði Arnór. Þjálfarar og læknalið Barcelona settu saman æfingaáætlun fyrir hvern og einn leikmann til að vinna að í sumar, áður en leikmenn koma saman til æfinga á undirbúningstímabilinu. Leikmenn félagsins hófu þessar æfingar í vikunni og ber þeim að æfa þrisvar í viku, kvölds og morgna, og svo oftar þegar nær dregur tímabilinu. Leikmenn félagsins eru einnig hvattir til að slappa af inn á milli og spila golf eða strandblak.
Spænski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Sjá meira