Sökk eða stökk 4. júlí 2007 03:45 Eggert Pétursson listmálari er einn þeirra sem leggja verk til uppboðsins en verk hans eru í miklum metum þessi misserin en fást ekki gefins enda unnin á löngum tíma með miklu nostri.
Hópur listamanna leggur alþjóðlegri ráðstefnu lið sem haldin verður hér um komandi helgi með því að gefa verk eftir sig. Verða verkin boðin upp á uppboði á fimmtudag en þau verða til sýnis í Startart á Laugavegi 12b í dag og á morgun á afgreiðslutíma verslana. Klukkutíma fyrir uppboðið, sem verður kl. 17 á fimmtudag, kynna listamennirnir verkin áhugasömum. Það er glæsilegur hópur sem leggur málefninu lið: Áslaug Thorlacius, Birgir Andrésson, Eggert Pétursson, Haraldur Jónsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Kristinn G. Harðarson, Kristín Reynisdóttir, Magnús Pálsson, Ólafur Lárusson, Ragnhildur Stefánsdóttir og Þórdís Alda Sigurðardóttir. Listaverkauppboðið er til styrktar ráðstefnunni „Saving Iceland" sem haldin verður helgina 7. og 8. júlí. Þar munu sérfræðingar og fulltrúar baráttusamtaka frá fimm heimsálfum fjalla um hnattrænar afleiðingar stóriðju og stórstíflna. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér dagskrá þessa sumarþings um ástand heimskringlunnar geta litið á vefsíður því helgaðar: http://www.savingiceland.org. og http://www.savingiceland.org/conference Áhugamenn um myndlist fá hér gullið tækifæri til að komast yfir merkileg verk og styrkja um leið ungan umræðuvettvang um gamalt deilumál.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira