Möndlumjólk á morgunkornið 28. júní 2007 05:00 Solla notar döðlur í möndlumjólkina sína en einnig er hægt að nota annað sætuefni í þeirra stað.
Sólveig Eiríksdóttir eldar kynstrin öll af gómsætum grænmetisréttum fyrir Völu Matt í kvöld í þætti hennar Matur og lífsstíll. „Solla himneska, eins og maður kallar hana þar sem hún rekur fyrirtækið Himnesk hollusta, er ótrúlega hugmyndarík og sniðug þegar kemur að spennandi uppskriftum,“ segir Vala. „Uppskriftirnar eru alveg dúndurhollar og á sama tíma ofboðslega bragðgóðar því hún er svo mikill sælkeri sjálf.“ Í þættinum útbýr Solla mjög sérstakt kúrbítspasta, sítrónuköku með súkkulaði og spennandi hollustudrykk. „Ég er sérstaklega hrifin af hollustudrykknum en honum er hægt að skutla í sig hvenær sem er dagsins, hvort sem það er snemma á morgnana eða bara svona síðdegis til að slá á mesta hungrið fyrir kvöldmat,“ sagði Vala en uppskrift að hollustudrykknum fylgir. Möndlurnar má leggja í bleyti í átta til tólf klukkustundir en það er þó ekki nauðsynlegt. Allt er sett í blandara og beðið þar til allt er mjúkt og kekklaust. Sólveig Eiríksdóttir Fær góð meðmæli frá Völu Matt. Gott er að skilja hratið frá mjólkinni með sigti, grisju, nælonsokk eða þéttofnum spírupoka. Þetta er borið fram kælt eða við stofuhita. Hægt er að skipta döðlunum út fyrir 1 tsk. agave, 1/4 tsk. stevíu eða 1 msk. maca en einnig má sleppa sætuefninu bara alveg. Möndlumjólkin er frábær í staðinn fyrir mjólk, hún er góð út á morgunmatinn eða í pottrétti í stað kókosmjólkur og einnig hægt að nota sem grunn í mjólkurhristinga.
Matur Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Í kossaflensi á Beyoncé Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Arnar og Sara gáfu syninum nafn Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Lífið