Viðskipti erlent

Líkur á hærri vöxtum í Bretlandi

Seðlabankastjórinn Mervyn King, breska seðlabankastjóranum, varð ekki að ósk sinni um hækkun stýrivaxta fyrr í mánuðinum.
Seðlabankastjórinn Mervyn King, breska seðlabankastjóranum, varð ekki að ósk sinni um hækkun stýrivaxta fyrr í mánuðinum. Fréttablaðið/AFP

Skoðanir voru skiptar innan peningamálanefndar Englandsbanka að halda stýrivöxtum óbreyttum í byrjun mánaðar. Fimm nefndarmenn voru fylgjandi því að halda vöxtunum óbreyttum í 5,5 prósentum en fjórir studdu hækkun upp á 25 punkta.



Á meðal þeirra sem mæltu fyrir hækkun var Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, en hann hefur verið undir miklum þrýstingi síðustu mánuði að hækka stýrivexti til að kveða breska verðbólgudrauginn niður. Þetta mun vera í annað sinn frá því King tók við stóli bankastjóra Englandsbanka sem hann lýtur í lægra haldi á fundi peningamálanefndarinnar.



Verðbólga mældist 3,1 prósent í mars og greip bankinn strax til aðgerða. Skilaði það sér í því að verðbólga mælist nú 2,5 prósent, sem þó er nokkuð yfir 2,0 prósenta verðbólgumarkmiðum Englandsbanka.



Breskir greinendur segja það hafa komið mjög á óvart hversu mjótt var á munum og telja auknar líkur á stýrivaxtahækkun í Bretlandi í bráð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×