Meira en helmingur markanna gegn KR 16. júní 2007 03:15 Fagnar hér marki sínu gegn KR í fyrrakvöld ásamt Ásgeiri Gunnari Ásgeirssyni og Dennis Siim.fréttablaðið/daníel
Guðmundur Sævarsson, bakvörðurinn knái í FH, skoraði í fyrrakvöld annað mark sinna manna gegn KR í Vesturbænum. Það var hans ellefta mark í efstu deild á ferlinum en þar af hefur hann skorað sex þeirra á móti KR. Guðmundur skoraði þrennu í 7-0 sigrinum fræga á Kaplakrikavelli í lokaleik umferðarinnar 2002 og þar að auki hefur hann skorað þrívegis í Vesturbænum. „Ég held nú að liðinu öllu líði yfirleitt vel í Vesturbænum," sagði hann aðspurður um hverju þetta sætti. „Ég legg svo sem enga sérstaka áherslu á að skora gegn KR," bætti hann við. Markið í fyrrakvöld skoraði hann þar að auki með skalla sem þykir heldur óvenjulegt. „Ég man nú ekki hvenær ég skoraði síðast með skalla. Ég held samt að það hafi einhvern tímann gerst áður í meistaraflokki," sagði hann. Hann er þó alls ekki óvanur því að skora mörk því hann lék sem framherji í gegnum alla yngri flokkana hjá FH. Þótti hann markheppinn með eindæmum. Guðmundur spilaði sitt fyrsta tímabil í efstu deild árið 2001. „Ég spilaði sem bakvörður í 2-3 leikjum þegar Hilmar Björnsson meiddist en annars lék ég fyrst og fremst á hægri kantinum þessi fyrstu ár í deildinni. Það var svo árið 2004 sem ég fór í bakvörðinn. Mér líkar vel þar og þar að auki gefur þjálfarinn mér leyfi til að sækja aðeins fram á völlinn," sagði hann. Hann er vitanlega sáttur við árangur FH-liðsins til þessa á mótinu og segir að það stefni að sínum fjórða Íslandsmeistaratitli í röð. „Ég held að við hefðum vel sætt okkur við þessa góðu byrjun fyrir mót."
Íslenski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira