Margbreytileg framúrstefna 9. júní 2007 14:00 Dansleikhúsflokkurinn UglyDuck.Productions setur upp tvær sýningar í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Dansleikhúsflokkurinn UglyDuck.Productions sýnir þrjú verk í Hafnarfjarðarleikhúsinu í kvöld og annað kvöld í tilefni af Listahátíðinni Björtum dögum í Hafnarfirði. Flokkur þessi er undir stjórn Steinunnar Ketilsdóttur og Andreas Constantinou, sem sameinuðu listræna krafta sína undir þessari yfirskrift eftir að hafa bæði unnið sjálfstætt að list sinni og sýnt verk sín í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum. Flokkurinn hefur það að markmiði að skapa margbreytileg og framúrstefnuleg dansverk sem endurspegla samtímann og áhorfendur dagsins í dag. Sýning þeirra, „Dark Nights“, samanstendur af þremur sjálfstæðum verkum. „Time“ er fyrsta samstarfsverkefni Steinunnar Ketilsdóttur og Andreas Constantinou. Verkið er samið fyrir fjóra dansara og varpar undarlegu ljósi á mannleg samskipti og sambönd. Sólóverkið „Ein“ er eftir Steinunni Ketilsdóttur. Innblásturinn að verkinu kemur úr feminískum fræðum. Kynferði og sjálfið fléttast saman við völundarhús fortíðarinnar. Þriðja atriði kvöldsins er stuttmyndin „Embrace“ eftir Andreas Constantinou sem lýsir sálfræðilegri tilraun einstaklings til þess að takast á við dauðann. Sýningarnar tvær hefjast kl. 20 og er aðgangur að þeim ókeypis. Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má finna á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira