Dansað í Óperunni 12. maí 2007 08:00 Lára Stefánsdóttir er á förum með dönsurum sínum til Stuttgart en verður með sýningar í Óperunni í dag og á morgun.
Dans-leikhúsið Pars pro toto er vaknað enn á ný eins og það gerir reglulega: tilefnið er boð um að sýna tvö verk á hátíð í Stuttgart í Þýskalandi hinn 18. og 19. maí næstkomandi. Þar hefur flokknum verið boðið að sýna verkin Von og G.Duo á Íslandshátíð þar í bæ. Og meðan járnið er heitt verða tvær sýningar hér á landi í samstarfi við Íslensku óperuna, sú fyrri í dag kl. 17 og á morgun kl. 20. Pars pro toto (PPT) er sjálfstæður danshópur undir forystu Láru Stefánsdóttur, en hópurinn setur að jafnaði upp eina til tvær nýjar sýningar á ári, með margvíslegum dönsurum og listamönnum. Að þessu sinni frumflytur PPT verkið G.Duo og eru höfundar þau Lára Stefánsdóttir og Vicente Sancho. Vinnuaðferðir Láru og Vicente Sancho eiga sérlega vel saman, Sancho kemur úr heimi látbragðsins með rætur í Decroux-tækni og bókmenntum en hefur einnig unnið mikið sem dansari og leikari. Lára Stefánsdóttir hefur langa reynslu að baki sem dansari og danshöfundur og unnið til margvíslegra verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín. Þau dansa í G.Duo ásamt þeim Kamil Warchulski frá Póllandi, Sögu Sigurðardóttur og Sverri Guðjónssyni. Leikræn útfærsla er í umsjón Vicente Sancho, tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson og Guðna Franzson en um lýsingu sér Björn Bergsteinn Guðmundsson. G.Duo er styrkt af Reykjavíkurborg. Dansverkið Von var sýnt í Íslensku óperunni í nóv 2005 og fékk fádæma góðar viðtökur. Von er byggt í kringum nokkur ljóða Árna Ibsen rithöfundar og er nú endursýnt með nýjum karldansara, Kamil Warchulski, sem leysir Hannes Egilsson af hólmi.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira