Ull í ungum höndum 16. apríl 2007 07:00 Nemendur í Rimaskóla sýna ljóð og list í Gerðubergi.
Nemendum í Rimaskóla er margt til lista lagt en á morgun verður opnuð sýning á textílverkum nemenda í sjötta bekk skólans í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Kennarar í textílmennt og íslensku við skólann fengu börnunum það verkefni að semja ljóð og síðan áttu þau að gera mynd úr þæfðri ull út frá inntaki ljóðsins. Útkoman er harla glæsileg og óhætt að fullyrða að val verka á sýninguna reyndist mjög erfitt. Efni ljóða og mynda er fjölbreytt og fjalla þau um allt milli himins og jarðar; lífið og tilveruna, fjölskylduna, dýrin, náttúruna og himingeiminn sjálfan. Sýningin er í Kaffi Bergi og stendur til 6. maí næstkomandi. Í Gerðubergi stendur jafnframt yfir yfirlitssýning á verkum myndlistarkonunnar Rúrí og lýkur þeirri sýningu einnig 6. maí.
Mest lesið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Hafði ekki hugmynd um að einstakt hjól sitt væri týnt Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Tónlist Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið Var farin að fá kvíðaköst þegar dóttirin bað um að fara í göngutúra Lífið Lada Sport okkar tíma Lífið samstarf Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira