Með Biblíur í kassavís 16. apríl 2007 08:30 Krossinn keypti fimm kassa af Biblíunni frá árinu 1982 og Gunnar hyggst beina því til safnaðarins að hann nái sér í þá útgáfu.
Samkvæmt vef Mannlífs var Gunnar Þorsteinsson, oftast kenndur við Krossinn, sagður vera farinn að hamstra Biblíur en hann hefur ekki farið leynt með andúð sína á nýrri þýðingu bókarinnar sem væntanleg er á næstu misserum. Þegar Fréttablaðið náði tali af Gunnari vildi hann ekki kannast við hömstrunina í fyrstu en viðurkenndi loks að söfnuðurinn hefði keypt fimm kassa af Biblíunni frá árinu 1982. Til þess að hann myndi ekki komast í þrot þegar ný Biblía kæmi út. „Og ég ætla að kynna fyrir söfnuðinum mínum að hann nái sér í þá útgáfu en ekki hina nýju,“ útskýrir hann. Nýja Biblían er ekki enn komin í prentun en ráðgert er að hún komi út með haustinu. „Hún átti að vera komin út fyrir mörgum árum en þeir eru eitthvað smeykir við útgáfuna,“ útskýrir Gunnar sem er ekki einn um þessa skoðun því hann segir aðra forstöðumenn í hinum frjálsu kristilegu söfnuðum reita hár sitt og skegg yfir þessari þýðingu. „Hún er ekkert annað en árás á menningu okkar og bókmenntir og ekki síst kristindóminn,“ segir Gunnar. „Það er ekki hægt að berja sínar sérkenningar inn í fólk með því að falsa orð Guðs. Menn lenda í fangelsi ef þeir falsa peninga eða skírteini, en að falsa vegvísi sálarinnar?“ segir Gunnar. „En sem betur fer vakir Hann yfir orði sínu og ég ætla að hjálpa honum með það,“ bætir hann við.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira