Rætt um Bjólf og Jónas 25. mars 2007 13:00 fræðimaðurinn Dick Ringler ræðir um þýðingar á verkum Jónasar Hallgrímssonar.
Bandaríska sendiráðið gengst fyrir heimsókn prófessorsins Dick Ringler hingað til lands en hann mun halda fyrirlestra í Háskóla Íslands á morgun og á þriðjudag. Ringler er prófessor emeritus við Wisconsin-háskóla í Madison, en þar kenndi hann forníslensku og norræn fræði í rúm þrjátíu ár. Hann er enn fremur heiðursdoktor við Háskóla Íslands. Ringler mun ræða um fornenska frásagnarljóðið Bjólfskviðu sem verður gefið út í nýrri þýðingu fyrirlesarans síðar á þessu ári. Mun hann fjalla um ýmis álitamál sem tengjast þessu gamla kvæði og kynna leiklestur á þýðingunni sem kom nýlega út á geisladiski. Fyrirlesturinn verður haldinn á morgun milli kl. 12 og 13 í Odda við Sturlugötu. Í síðari fyrirlestrinum á þriðjudag mun Ringler fjalla um þýðingar á verkum Jónasar Hallgrímssonar og hvernig og hvort sé hægt að þýða form og merkingu skáldskaparins yfir á ensku. Fyrir nokkrum árum kom út ritið „Bard of Iceland“ sem hefur að geyma þýðingar fyrirlesarans á helstu skáldverkum Jónasar ásamt ítarlegum skýringum og æviágripi skáldsins. Fyrirlesturinn verður kl. 12-13 í stofu 132 í Öskju við Sturlugötu.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira