Nýtt ævintýri á gönguför 23. mars 2007 07:00 Þráinn Karlsson og Kristín Þóra Þórhallsdóttir í ævintýri fólks á gönguför eftir Þorvald Þorsteinsson sem frumsýnt er í kvöld í Rýminu Leikfélag Akureyrar/Grímur Bjarnason
Það ríkir eftirvænting á Akureyri vegna frumsýningar kvöldsins í Rýminu. Þá birtist Akureyringum nýtt verk eftir heimamann, Þorvald Þorsteinsson, í sviðsetningu Kjartans Ragnarssonar og er þetta fyrsta sviðsetning hans eftir nokkurt hlé. Það er LA sem stendur að frumsýningunni í Rýminu í samstarfi við leiklistardeild Listaháskólans. Uppselt er á tólf fyrstu sýningarnar. Lífið – notkunarreglur heitir verkið. Einvala lið listrænna stjórnenda stýrir leikhópi LA og útskriftarárgangi leiklistardeildar Listaháskólans. Megas hefur samið tónlist við verkið sem meðal annars inniheldur tíu ný sönglög við texta Þorvaldar. Þetta er í fyrsta sinn sem þeir vinna saman en þeir áttu góðar samverustundir fyrir fjölda ára í Myndlista- og handíðaskólanum. Magga Stína útsetur, stýrir tónlistinni í sýningunni, semur hljóðheim verksins og tekur þátt í flutningi verksins. Leikskáldið Þorvaldur hannar einnig leikmynd og búninga en þetta er í fyrsta skipti sem hann tekst á við það í leikhúsi, þótt hann sé þekktur myndlistarmaður. Í kynningarefni um sýninguna segir: „Lífið – notkunarreglur er ævintýrið um okkur öll – fullt af hlýju, tónlist og leiftrandi húmor. Hvað var það nú aftur sem við áttum að gera við þetta blessaða líf? Erum við kannski að misskilja þetta allt saman? Eða er ástin ef til vill svarið sem allt snýst um? Litríkur hópur fólks stendur frammi fyrir áleitnum spurningum um framtíðina og eigin hlutverk í lífinu, spurningunum sem enginn virðist geta svarað svo vel sé, enda fylgir sjaldnast bæklingur með börnunum sem fæðast í þennan heim. Hér er fjallað um sundurleitan samtíma og óvissa framtíð á svo mannlegum og hrífandi nótum að allir verða ríkari á eftir.“ Þorvaldur hefur þreifað fyrir sér á ýmsum sviðum: Meðal rómaðra verka hans eru Feðgarnir, Maríu sögur, ...and Björk of course, Blíðfinnur og Skilaboðaskjóðan, sem verður sett upp í Þjóðleikhúsinu á komandi hausti. Hann hefur staðið fyrir uppsetningu sérstakra sýninga og tekið þátt í samsýningum af ýmsu tagi. Bækur hans um Blíðfinn þekkja öll börn og skáldsaga hans Við fótskör meistarans verður brátt kvikmynduð af Poppoli Films í leikstjórn Ólafs L. Jóhannesson. Kjartan Ragnarsson hefur ekki unnið að leikstjórn um nokkurt skeið. Hann er einn reyndasti leikstjóri landsins og meðal sýninga hans eru Sjálfstætt fólk, Þrúgur reiðinnar og Land míns föður. Þetta er fyrsta sýning hans fyrir LA. Kjartan Ragnarsson.Langt er síðan hann vann með lokaársnemum: „Það er bara gaman í dag,“ sagði hann í viðtali við Fréttablaðið í gær. „ Þetta er fínt rými, svipar til Kassans og Nýja sviðs Borgarleikhússins, þó það sé minnst þeirra. Það tekur 120 gesti í sæti. Við leikum verkið í rennu á miðju gólfinu. Ég sæki í það form, setti upp þrjár sýningar í Svíþjóð á slíku leiksvæði og tvær í Borgarleikhúsinu.“ Það eru nær tvö ár síðan Kjartan vann við leikstjórn, enda segir hann aðkomu sína að Landnámssetrinu í Borgarnesi hafa verið á við þrjár til fjórar produktsjónir. Hann segir Þorvald leitandi skáld og metnaðarfullan, hann fari ekki hefðbundnar leiðir. Kjartan hefur ekki unnið áður með þessum hópi leikara: „Þau eru að læra á mig og ég er að læra á þau.“ Leikarar eru Guðjón Davíð Karlsson, Ólafur Steinn Ingunnarson, Páll Sigþór Pálsson, Þráinn Karlsson, Vignir Rafn Valþórsson, Sigrún Huld Skúladóttir, Tinna Lind Gunnarsdóttir, Sara Marti Guðmundsdóttir, Magnús Guðmundsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Anna Svava Knútsdóttir og Hallgrímur Ólafsson. Og um hvað snýst verkið? „Þetta er ævintýri fyrir fullorðna, dæmisaga. Fólk er á ferð um skóg – það er bannað að nema staðar og vera kyrr um stund. Þá koma verðir og reka fólkið áfram. Það er bannað að stoppa. Um þetta snýst verkið.“
Mest lesið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Lífið Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Menning Úr öskunni í eldinn Gagnrýni Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Lífið Laufey á lista Obama Lífið Pete orðinn pabbi Lífið Fleiri fréttir Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Vangreiðslugjald orð ársins 2025 Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Auður segir skilið við Gímaldið Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Kanónur í jólakósí „Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Munur er á manviti og mannviti Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Helgi snýr heim: „Laus við leiðindin sem bjuggu þetta til“ Jón Ásgeirsson tónskáld er látinn Sjá meira