Rætt um Lindgren 9. mars 2007 08:15 Rætt verður um áhrif Astridar Lindgren á barnamenningu fyrr og nú á ráðstefnu í Gerðubergi.
Ráðstefna um barnabókmenntir og barnamenningu verður haldin í menningarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun. Ráðstefnan er að þessu sinni tileinkuð Astrid Lindgren og framlagi hennar til barnamenningar fyrr og nú. Sérstakur gestur ráðstefnunnar er Helena Gomér sem er yfirmaður barnadeildarinnar Rum för Barn í Menningarhúsi Stokkhólmsbúa. Hún býr að mikilli reynslu á sviði barnamenningar bæði úr leikhús- og kvikmyndaheiminum, auk þess sem hún vann við að koma á fót barnamenningarhúsinu Junibacken, sem tileinkað er Astrid Lindgren og sænskum barnabókmenntum. Í fyrirlestri sínum miðlar hún af reynslu sinni og síðan mun Ragnheiður Gestsdóttir, fundarstjóri ráðstefnunnar og talsmaður Samtaka um barnamenningarstofnun, leiða umræður. Silja Aðalsteinsdóttir og Sigþrúður Gunnarsdóttir fjalla um líf og rithöfundarferil Lindgren og Katrín Jakobsdóttir heldur fyrirlestur sem hún kallar „Villta barnið og siðmenningin“ þar sem hún fjallar um eina af frægustu söguhetjum skáldkonunnar, Línu langsokk. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur, Félag skólasafnakennara, IBBY á Íslandi, Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur og Upplýsingu - Félag bókasafns- og upplýsingafræða. Dagskráin hefst kl. 10.30 á morgun og er aðgangur ókeypis.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira