Fáðu þér bara sæti 9. mars 2007 09:30 Frumstæð en heimilisleg sæti. Verk Hlyns Hallssonar í galleriBOXi er notendavænt og þægilegt að sjá.
Myndlistarmaðurinn Hlynur Hallsson opnar sýninguna LJÓS - LICHT - LIGHT í galleriBOXi á Akureyri kl. 16 á morgun. Verkið sem Hlynur setur upp í galleriBOXi samanstendur af borði og sætum sem gerð eru á afar einfaldan hátt úr froðuplastplötum og gæruskinni. Froðuplastið er tilbúið efni sem gjarnan er notað til einangrunar en gæruskinnið er náttúruleg afurð sem er einnig gjarnan notuð til einangrunar eða öllu heldur sem fóður í ýmsar flíkur. Froðuplastið er framleitt hjá Plastási á Akureyri en gærurnar koma frá Skinnaiðnaði sem nú er búið að flytja til austurhluta Evrópu. Hlynur hefur sett upp svipuð verk í Hannover og Vín og nú stendur yfir sýning hans hjá Kuckei+Kuckei í Berlín. Sýningargestir geta fengið sér sæti og hvílt lúin bein, spjallað saman eða horft hver á annan. Fólk getur blaðað í skrám frá sýningum sem Hlynur hefur haldið eða tekið þátt í. Einnig er hægt að ferðast í huganum til fjarlægra landa ef mann langar heldur til þess, sitjandi á þessum frumstæðu en hlýlegu bekkjum. Á vegginn hefur Hlynur úðað skilaboð sem hægt er að útleggja á ýmsa vegu. Á sama tíma og sýningin í galleriBOXi verður opnuð opnar Hlynur einnig sýningu á www.veggverk.org á vegg á mótum Glerárgötu og Strandgötu á Akureyri.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira