Í minningu Hallgríms 3. mars 2007 11:00 Einar Jónsson listamaður myndhöggvari myndlistarmaður safn bygging
Sýning á verkum Einars Jónssonar myndhöggvara verður opnuð í forkirkju Hallgrímskirkju í dag. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, opnar sýninguna kl. 17 en hún er unnin í samvinnu Listvinafélags Hallgrímskirkju og Hallgrímssafnaðar við Listasafn Einars Jónssonar sem lánar verkin. Á sýningunni eru þrjú gifsverk, Mold frá 1904-1908, Natura Mater frá 1906 og Minnismerki Hallgríms Péturssonar frá 1914-1922, sem öll eru hugsuð sem minnismerki látinna og viðfangsefni þeirra mót lífs og dauða, hringrás lífsins og sigur andans yfir efninu. Stærst verkanna er Minnismerki Hallgríms Péturssonar sem Einar hóf að gera þegar þrjú hundruð ár voru liðin frá fæðingu séra Hallgríms og er verkið hylling til sálmaskáldsins. Er þar sérstaklega vísað til Passíusálmanna með myndum af hinum fjórtán stöðvum á píslargöngu Krists og eru ljósmyndir af þeirri myndröð á sýningunni. Minning séra Hallgríms mun hafa verið Einari sérlega hugleikin og í safni hans er líkan að Hallgrímskirkju sem myndir eru af á sýningunni. Sýningin stendur til loka maímánaðar og er opin á sama tíma og kirkjan. Við opnun sýningarinnar syngur Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira