Myndir ársins 2006 18. febrúar 2007 00:01 Sviprík Tilfinningastund Björn Ingi Hrafnsson stígur dans við móður sína á prófkjöri Framsóknarflokksins. Pjetur Sigurðsson myndaði.
Margt var um manninn á hinni árlegu ljósmyndasýningu Blaðaljósmyndarafélags Íslands sem opnuð var í Gerðarsafni í Kópavogi í gær. Geir H. Haarde setti sýninguna og að því loknu voru verðlaun veitt í 10 flokkum ljósmynda, m.a. fyrir fréttamynd, íþróttamynd, portrettmynd, skoplegustu mynd og þjóðlegustu mynd ársins. Í ár voru í fyrsta skipti veitt vegleg peningaverðlaun fyrir alla flokka en það var Glitnir sem styrkti þau verðlaun. Dómnefndina skipuðu þeir Ari Sigvaldason, Bjarni Eiríksson og Terje Bringedal, ritstjóri Verdens Gang í Noregi. Samhliða sýningunni verður bókin Myndir ársins gefin út en það er Edda útgáfa sem gefur bókina út og er hún styrkt af Menningarsjóði Blaðamannafélagsins. Á neðri hæð safnsins er einnig í gangi ljósmyndasýning á myndum frá Kárahnjúkum en það eru ljósmyndararnir Ragnar Axelsson, Páll Stefánsson, Þorvaldur Örn Kristmundsson, Kristinn Ingvarsson, Brynjar Gauti Sveinsson og Vilhelm Gunnarsson sem sýna þar myndir sínar. Sýningin stendur til 18. mars og á henni gefur að líta á um 200 myndir. Hér má sjá nokkrar af þeim myndum sem ljósmyndarar Fréttablaðsins eiga á sýningunni.Fagmannlegt káf Gunnar V. Andrésson festi það á filmu þegar hljóðmaður nokkur smeygði sér innan klæða á Yoko Ono til að koma þar tækjabúnaði fyrir.álfarnir komnir heim til sín Anton Brink var staddur í Ásbyrgi þegar Sigur Rós spilaði þar síðastliðið sumar úti undir beru lofti.stigið úr þokunni Geir H. Haarde forsætisráðherra stígur um borð í herskipið USS Wasp en heimsókn þess hingað átti að sýna stuðning Bandaríkjanna á táknrænan hátt eftir að varnarsamningur var í höfn. Heiða Helgadóttir myndaði.eins manns partí Vilhelm Gunnarsson myndaði Ólaf Stefánsson þar sem hann lét líða úr sér eftir glæstan sigur með liði sínu, Ciudad Real, í meistaradeild handboltans.á réttum stað Þessi fótbrotni hvutti sem ljósmyndarinn Valgarður Gíslason hitti fyrir við Árbæjarsafn, var greinilega mjög meðvitaður um ástand sitt.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist