Tækjamanía og takmörkuð not 10. febrúar 2007 10:30 Sýning Kling og Bang: Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Arnar Friðriksson
Listamennirnir Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson opna sýningar í Kling og Bang Galleríi í dag. Þeir félagar hafa undanfarin sjö ár haldið sameiginlegar sýningar með yfirskriftinni Markmið, en nú sýna þeir hvor í sínu lagi – þó með sömu yfirskrift. Sýning Helga er framhald einkasýningar hans og geymir meðal annars brjóstvarnir úr timbri en Pétur Örn líkir sinni við framhaldssögu þar sem hann endurvinnur á kunnuglegan hátt þau viðfangsefni sem verið hafa honum hugleikin undanfarin ár. Á sýningu hans má til að mynda sjá skrifborð sem um leið er farartæki en þeir félagar hafa brugðið sér í ham uppfinningamanna í gegnum tíðina og smíðað ýmis ólíkindatól með hjálp kraftmikilla handverkfæra. Drengir á öllum aldri hafa löngum verið heillaðir af möguleikum tóla og tækja en í kynningartexta sýningarinnar er vísað til þeirrar gósentíðar sem nú ríkir meðal slíks áhugafólks „...risajeppar, seglbretti og önnur óvenjuleg farartæki eiga sér dyggan aðdáendahóp, sem þreytist seint á að breyta, bæta, styrkja og búa til ný hlutverk fyrir þessi leikföng lífsgleðinnar. Tækjamanía er orðin viðurkenndur lífsstíll.“ Listamennirnir hafa unnið að því, bæði í sameiningu og hvor á sinn hátt að færa þessa ástríðu yfir á svið myndlistarinnar, til dæmis með því að hanna og smíða fararskjóta fyrir nær óhugsandi aðstæður, furðuleg tæki með vafasamt notagildi og vélar sem vart geta sinnt hlutverki sínu. Sýningin verður opnuð kl. 17.30 í dag og stendur til 4. mars. Galleríið er opið fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 14–18.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira