Þekkir þú myndefnið? 10. febrúar 2007 15:00 Glöggir og minnugir gestir eru sérlega velkomnir í Minjasafn Akureyrar Leitað er liðsinnis við að koma nöfnum á óþekktar myndir ljósmyndadeildarinnar.
Ljósmyndadeild Minjasafnsins á Akureyri státar af safnkosti upp á 2,5 milljónir mynda. Margar myndanna eru óþekktar og nú óskar Minjasafnið eftir aðstoð almennings við að koma nafni á andlit og heiti á hús og önnur mannvirki. Af því tilefni opnar safnið sýninguna „Þekkir þú... híbýli mannanna?“ í dag kl. 14. Á sýningunni er að finna sjötíu myndir sem þekktir og óþekktir ljósmyndarar tóku fyrr á tímum. Meðal þekktra ljósmyndara sem eiga myndir á sýningunni má nefna Hallgrím Einarsson og Arthur Gook. Flestar myndanna eru frá Akureyri og úr Eyjafirði en einnig frá öðrum landshlutum. Í sólstofunni er hægt að fletta myndum af óþekktum einstaklingum auk möppu með mannamyndum úr eigu Minjasafnins sem birtust í Degi á árunum 1990-2000. Einnig verða nokkrir sérstæðir gripir úr Minjasafninu til sýnis. Þeir eru óvenjulegir og sumir óþekktir, og geta gestir spreytt sig á að finna út heiti þeirra og hlutverk. Í tilefni af tuttugu ára afmæli ljósmyndadeildar Minjasafnsins mun Hörður Geirsson safnvörður vera með sérstaka kynningu á tækjum og ljósmyndatækni ólíkra tímabila í dag og þann 24. mars kl. 14. Þá geta menn kynnt sér hvernig myndir urðu til allt frá því að þær voru teknar á myndavélina til þess að standa í ramma á heiðursstað á heimilinu. Sýningin er opin alla laugardaga milli 14-16. Aðgangur á safnið er ókeypis meðan á sýningunni stendur til 28. apríl.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira