Rafræn útgáfa 7. febrúar 2007 07:45 Kristján B. Jónasson formaður Félags Íslenskra bókaútgefenda
Félag íslenskra bókaútgefenda býður til morgunverðarfundar á föstudaginn þar sem litið verður yfir stöðu rafrænnar bókaútgáfu á Íslandi og rædd helstu úrlausnarefni og tækifæri á þeim vettvangi. Eins og kunnugt er hafa bókaútgefendur víða um lönd velt fyrir sér möguleikum á rafrænum útgáfum, að koma texta beint til lesenda sem verða þá að lesa af skjá eða prenta út sjálfir. Á fundinum verður þetta efni rætt: Rafræn útgáfa – hvernig fer hún fram? Tryggvi Jakobsson, útgáfustjóri Námsgagnastofnunar, gerir grein fyrir reynslu fyrirtækisins af rafrænni útgáfu. Innskönnun og varðveisla - Ingibjörg Sverrisdóttir, sviðsstjóri varðveislusviðs Landsbókasafns Íslands – háskólabókasafns, fjallar um áform safnsins um stafræna endurgerð íslensks prentefnis og varðveislu rafrænna texta. Að verja og selja rafbækur - Hildur Anna Hjartardóttir framkvæmdastjóri og Rúnar Oddur Rafnsson, stjórnarformaður Urðar ehf., fjalla um möguleika á verndun fyrir ólöglegri afritun og dreifingarmöguleika rafrænna bóka. Nýting rafræns efnis – Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, fjallar um hvernig nýta má rafræna texta til rannsókna og kennslu. Eftir erindin verða umræður. Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli föstudaginn 9. febrúar nk. og hefst kl. 8.30. Fundarstjóri er Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Allir eru velkomnir og er hægt að staðfesta þátttöku fyrir 7. febrúar á baekur@simnet.is eða í síma 5118020.
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira