Listahátíðin í Björgvin 7. febrúar 2007 08:45 Listahátíðir Bryn Terfel stórsöngvari.
Það verða eitt hundrað og sextíu dagskráratriði í boði á Listahátíðinni í Bergen í vor, en þar er dagskráin kynnt. Listahátíðin í Reykjavík kynnir sína dagskrá á föstudag. Trio Mediæval, Cullbergballettinn sem hingað hefur komið í tvígang, Mischa Maisky, frumsýning á verki eftir Jon Fosse, Brottnámið úr kvennabúrinu eftir Mozart, kammerópera um síðustu daga Griegs og ungversk uppfærsla á Pétri Gaut eru meðal þess sem er í boði. Norsk sænska tríóið Trio Mediæval nýtur mikil álits fyrir flutning sinn á verkum úr ólíkum áttum: pólýfóníska miðaldatónlist frá Bretlandi og Frans, samtímatónlist og norrænar ballöður og söngva. Finnar voru í sviðsljósinu í fyrra, en í ár verða það Danir. Listahátíðin í Bergen er tónlistarhátíð fyrst og fremst: Danska útvarpshljómsveitin sækir þá heim og flytur verk eftir Nielsen. Aðrir þekktir gestir eru Bryn Terfel sem syngur dagskrá með lögum Franz Schubert, Roberts Schumann, Jaques Ibert og Geralds Finzi, og Mischa Maisky og eistneski Fílharmóníukórinn. Transiteatret-Bergen setur upp í fyrsta sinn verk Brechts, Die Massnahme, og hefur það ekki verið flutt fyrr á Norðurlöndum. Stjarna Noregs, Jon Fosse, á verkið Ég er vindurinn á dagskránni og er það frumflutningur. Tónskáld hátíðarinnar er Bent Sørensen og Carte Blanche & BIT20 Ensemble sýna dansverk við tónlist hans. Kirsuberjagarðurinn verður leikinn í sviðsetningu Yngve Sundvors. Þeir hafa þann sið Björgvinjarmenn að halda staðarskáld í fleiru en tónlist: ljóðskáld hátíðarinnar er Tone Hødnebø en myndlistarmaður Børre Sæthre. Herlegheitin byrja 23. maí og standa til 5. júní.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira