Hlotnast heiður 2. janúar 2007 11:45 Njörður P. Njarðvík
Njörður P. Njarðvík prófessor hlaut á dögunum menningarverðlaun Sænsk-íslenska menningarsjóðsins. Sjóður þessi var stofnaður árið 1995 í kjölfar gjafar sænsku ríkisstjórnarinnar til Íslendinga á fimmtíu ára lýðveldisári. Menningarsjóðurinn var stofnaður skömmu síðar og hafa verið veitt verðlaun úr honum næstum annað hvert ár síðan. Í umsögn styrknefndarinnar er þess getið að Njörður hafi lagt mikið af mörkum til menningarsamskipta Íslands og Svíþjóðar, meðal annars verið mikilvirkur þýðandi sænskra og Finnlands-sænskra ljóða. Ennfremur var Njörður lektor í íslensku við Gautaborgarháskóla 1966–71 og gegndi þá jafnframt formennsku í samtökum erlendra lektora í Svíþjóð og sat í stjórn félags háskólakennara þar. Samtímis sinnti hann kennsluskyldu við háskólann í Lundi. Hann var formaður Sænsk-íslenska félagsins á Íslandi 1971–75. Árið 2000 hlaut hann verðlaun Sænsku akademíunnar fyrir kynningu á sænskri menningu erlendis.
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira