Árita bækur sínar 19. desember 2006 11:23 Steinar Bragi áritar í Bókabúð Máls og menningar á morgun.
Eiríkur Guðmundsson og Steinar Bragi árita bækur sínar í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan sex miðvikudaginn 20. desember. Undir himninum eftir Eirík Guðmundsson segir frá útvarpsmanninum E, sem hefur um nokkra hríð ekki gert greinarmun á skáldskap og veruleika. Hann hefur gefið út greinasafn og verður fyrir aðkasti frá konum semm annað hvort þekkja sig of vel eða alls ekki í bók hans. E leggur stund á ritstörf á milli þess sem hann heldur við giftar konur, ræðir menningarástandið eða fer í ljós. Dag einn gloprar hann póstkorti út um glugga. Það er upphafið að enn frekari hremmingum. Eiríkur Guðmundsson er löngu þjóðkunnur fyrir skelegga pistla sína í útvarpsþættinum Víðsjá Á Rás 1. Í þessari skáldsögu sýnir Eiríkur á sér nýja og eftirtektarverða hlið og snýr hvað eftir annað á lesendur sína. "Skemmtilegur texti og furðulegur," sagði í fimm stjörnu dómi í Fréttablaðinu. Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins eftir Steinar Braga hefur verið kölluð "óvenjulegasta morðgáta jólabókaflóðsins." Það er myrkt og drungalegt haustkvöld í miðbæ Reykjavíkur þegar undarlegur maður ryðst inn á heimili Steins Steinarrs, leynispæjara. Maðurinn er farþegi á skemmtiferðaskipinu Heiminum sem liggur við festar í Reykjavíkurhöfn og tjáir spæjaranum og aðstoðarmanni hans, Muggi Maístjörnu, að skelfilegir atburðir séu yfirvofandi um borð í Heiminum. Í kjölfarið dragast þeir inn í þéttriðið net morða, blekkinga og kúgunar.
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira