Tónlist

Baggalútsæðið er hafið!

Þau stórkostlega merkilegu tíðindi urðu í vikunni að hin elskaða og dáða hljómlistardeild Baggalúts náði með tvær hljómskífur sínar inn á Tónlistann, auk þess að eiga lag á þeirri þriðju. Um er að ræða annars vegar tímamótaverkið „Aparnir í Eden", sem kom út í sumar og situr nú sem öldungur listans í 20. sæti og svo aftur tímalausu klassíkina „Jól & blíða", sem skýst glóðvolg beint í 6. sæti listans.

Auk þess flytur Baggalútur lag Megasar, „Undir rós" á hljómskífunni „Pældu í því sem pælandi er í", sem situr í 21. sæti og á að auki lagið „Brostu", sem gefið er út af UNICEF á Íslandi, en það ratar þó ekki á neina veraldlega lista, enda smáskífa gefin út til styrktar afskaplega góðu málefni - sem reyndar mætti segja um hinar útgáfurnar líka, með góðum vilja.

Er jafnvel talið að um nýtt æði, sambærilegt við hið svokallaða Bítlaæði 7. áratugarins, eða jafnvel Supertrampæði þess áttunda sé hér í uppsiglingu. Sérfróðir hafa þó bent á að ólíkt hinum æðunum, byggist Baggalútsæðið nær eingöngu af hams- og gegndarlausu útgáfumagni sveitarinnar, en ekki gæðum (eins og hjá Supertramp) eða útliti (eins og hjá Bítlunum).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×