Enginn dregur stein í efa 15. desember 2006 11:15 Það eru ljóðajól á Íslandi. Stjörnur: 5
Þjóðskáld á tímamótum, degi hallar. Skáld sem fylgt hefur ljóðvinum á heillandi ferðalagi hálfrar aldar um innland íslenskrar náttúru og sögu - þar sem stórhuga maðurinn leitar átta í skjálfandi smæð (29). Íslenskastur allra skálda, meistari myndmálsins, myndhöggvari orðsins, yrkir landið inn í ljóðið og lesanda sinn, yrkir nú haustgarðinn af engu minni list en fyrsta sprotann. Dýrlegur skáldskapur, bókstaflega göldróttur. Skáldið horfir til framtíðar með því að líta yfir farinn veg, rýnir í óradjúp jarðtímans (33), finnur skáldinu stað í sögunni og dregur af henni lærdóm. Hrífur lesandann með sér í flugsýn yfir ævidag skáldsins, frá morgun-draumi að kvölddyrum, horfir um öxl á ferðalag sitt og förunauta, vegferð mannsins gegnum stríð og frið, almátt ástar og náttúru, auðmýkt ljóðsins. Býður lesandanum hlutdeild í óvæntum galdri: opinberar honum tign náttúrunnar í fegurð ljóðsins, vekur honum sannfærandi hughrif, birtir honum mynd af yfirburðum náttúrunnar í orði og sannar með því yfirburð orðsins. Beinum sjónum að eilífðarmálum skáldmælandans (mælir í 1.pers. fleirtölu): Spyr um guð í guðlausum heimi og finnur svar í sköpunarverkinu sjálfu og blessaðri skepnunni: kyrrðarvizku, innar dögum (16), ástinni: alhvítur fugl ... í fullsælu sem hann trúir að vari frá eilífð til eilífðar (31). Skáldið skynjar afl handan mannsins ...okkur var hrundið... (6) en þótt hann standist ekki án draums (9,51) er holdið mold. Guð er orð úr fortíð (53), trúarbrögð mannleg íhlutunarsemi (16), himnafaðir úr bók, maðurinn manndýr sem bugaði myrkur sjálfs sín (25). Undir sundurleitum himnum (15) kröfðust „við förunautar" fyrrum svara og heimtuðum staðgengil guðs, en ... Hvílumst. Hlustum ef við getum á lífið - hina löngu hugsun (23): almættið er fellt í alla skepnu (15), sköpunarverkið er guð. Og hvað þá með okkur? Erum (vorum) við því samboðnir? Skáldið svarar því með/í svo fullkomnum skáldskap (44) að galdurinn endurtekur sig: orðið sigrar sjálft sig. Fullkomið ljóðið svarar öðru en öðru nær (44). Er list þá uppsteytur gegn ríki náttúrunnar, dulvitaður jafnvel, atlaga að reglu appólóníusar, díónýsísk brella? Getur ljóð sem býður náttúrunni sigurlaun - hásæti guðs og manns - verið til vitnis um eigin sigur (orðsins/mannsins) í sama boði? Það er ekki spurning bókarinnar en ef til vill ekki alvitlaus samt. Þegar ljóð eftir Hannes Pétursson birtust fyrst á prenti í tímariti árið 1954, skáldið þá 22 ára, var haft eftir Steini Steinari: „Ég hef aldrei vitað íslenzkan mann á hans aldri yrkja jafnvel". Það stendur. En það er vandi að gylla gull - flest er það í brotum sem við berum okkur í munn (23) - og um töfra þessarar nýju ljóðabókar Hannesar er enginn til vitnis utan bókin sjálf á eintali við lesandann ...silfurþráður inn í sannhreinan sunnanblæ... (39). Sigurður Hróarsson Hannes Pétursson .
Mest lesið Kristján Einar leitar sér aðstoðar Lífið Hætta með Þarf alltaf að vera grín? af persónulegum ástæðum Lífið Svona færðu fullnægingu án handa Lífið Nældi sér í einn umdeildan Lífið Hrósar eiginkonu Bruce Willis fyrir umönnun leikarans Lífið Yngsti Íslendingurinn frá upphafi sem safnar skákstigum Lífið Íslenskur Hollywood-leikari selur íbúð í Seljahverfinu Lífið Þjóðbúningurinn aðal skvísuflíkin í dag Tíska og hönnun Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Tónlist Kaupir fjórða húsið við sömu götu Lífið Fleiri fréttir Stórtónleikar og flugeldasýning að vanda á Ljósanótt Neðanjarðarpartý og menningarveisla fyrir öll vit Ný viðbygging við Þjóðleikhúsið „langþráður draumur“ Skammar vini sína: „Hættum Happy birthday á Facebook“ Klórar sér í kollinum yfir nýrri göngubrú: Margt „mjög sérstakt“ sem menn hafi búið til síðustu ár Ráðin nýr verkefnastjóri menningar í Kópavogi Ljósbrot tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Sjá meira
Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Tónlist
Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Tónlist