Ólík andlit sálmaskáldsins Hallgríms 2. desember 2006 14:30 Myndlistarmaðurinn Jón Reykdal á veg og vanda að óvenjulegri sýningu í Hallgrímskirkju. MYND/Vilhelm
Í tilefni af 25 ára starfsafmæli Listvinafélags Hallgrímskirkju á 20 ára vígsluafmæli kirkjunnar verður opnuð allsérstök myndlistarsýning í kirkjunni í dag. Á sýningunni „Mynd mín af Hallgrími“ má sjá portrettmyndir eftir tuttugu og átta myndlistarmenn sem gert hafa sína mynd af sálmaskáldinu Hallgrími Péturssyni, byggða á mynd Hjalta Þorsteinssonar í Þjóðminjasafni Íslands. Sýningin markar upphaf veglegrar afmælisdagskrár félagsins sem stendur fram á næsta ár. Jón Reykdal, myndlistarmaður og kennari við Kennaraháskólann, hefur veg og vanda að sýningunni en auk hans eiga m.a. myndlistarmennirnir Helgi Þorgils Friðjónsson, Sigrún Eldjárn, Hafliði Hallgrímsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Kristín Þorkelsdóttir og Leifur Breiðfjörð verk á þessari óvenjulegu sýningu. Herra Sigurbjörn Einarsson, biskup og fyrsti formaður Listvinafélags Hallgrímskirkju, opnar sýninguna í fordyri kirkjunnar kl. 14 í dag. Þá flytur dr. Margrét Eggertsdóttir, formaður félagsins, stutt ávarp. Nánar verður fjallað um afmælisdagskrá Listvinafélagsins í Fréttablaðinu um helgina.
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira