Biðja vegfarendur að mála ást 19. nóvember 2006 13:30 Biður íbúa í tólf borgum að mála ástina á striga. MYND/Heiða
Þeir Davíð Óskar Ólafsson, Hreinn Beck og Árni Filippusson vinna nú að verkefni sem þeir kalla Painting Love, ásamt Dananum Bjarke von Koning. „Við förum til tólf borga, stillum upp trönum og striga og biðjum vegfarendur um að mála ást," útskýrði Davíð. Hugmyndin er sprottin úr ástarsorg Bjarke. „Við þekkjumst frá því að við vorum saman í kvikmyndaskóla í Kaupmannahöfn, og þróuðum hugmyndina í sameiningu. Ætlunin var að búa til dagatal, og selja svo myndirnar tólf á uppboði til styrktar Lækna án landamæra. Svo tökum við upp og erum með ljósmyndara á svæðinu," sagði Davíð, en þeir íhuga nú að gefa einnig út bók. „Það er eins og við náum einhvern veginn til fólks í gegnum þetta. Það var til dæmis stelpa í Kaupmannahöfn sem málaði hauskúpu á strigann. Bjarke spurði hana út í það, og þá brotnaði hún saman og sagði frá því að hún hefði nýlega misst fyrstu ástina sína úr krabbameini. Þess vegna sá hún ástina í þessu ljósi," sagði Davíð. Þeir félagar eru nú hálfnaðir með verkefnið, en á mánudag verða þeir staddir í Smáralindinni þar sem vegfarendum gefst kostur á að mála ástina.
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira