Eyrarrós í hnappagat 4. nóvember 2006 13:45 Þjóðlagahátíð á Siglufirði. Hampaði verðlaunum Listahátíðarinnar, Eyrarrósinni, í fyrra.
Nýlega var auglýst eftir umsóknum um Eyrarrósina 2007, viðurkenningu til framúrskarandi menningarstarfs á landsbyggðinni og rennur umsóknarfrestur út 13. nóvember. Verðlaun verða afhent verður í þriðja sinn í janúar 2007. Þjóðlagahátíðin á Siglufirði hlaut fyrstu Eyrarrósina, sem afhent voru árið 2005 og Eyrarrósina 2006 hlaut LungA, listahátíð ungs fólks, Austurlandi. Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi umsækjenda og hljóta þau öll sérstaka kynningu. Eitt þeirra hlýtur Eyrarrósina, verðlaunafé kr. 1.500.000 og verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur, til eignar. Hin tvö hljóta kr. 200.000 viðurkenningu og öll verkefnin fá flugferðir með Flugfélagi Íslands. Viðurkenningin Eyrarrósin á rætur sínar í samningi sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands gerðu árið 2004 um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni. Markmiðið með samningnum er að stuðla að auknu menningarlífi á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta, gefa íbúum landsins kost á afburða alþjóðlegum listviðburðum og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Verkefnisstjórn Eyrarrósarinnar, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefnir og velur verðlaunahafa úr hópi umsækjenda, en umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn, tímabundið verkefni eða menningarhátíð. Viðurkenningin verður veitt í janúar 2007. Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú. Allar nánari upplýsingar um Eyrarrósina eru á heimasíðu Listahátíðar í Reykjavík, www.listahatid.is
Menning Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira