Ljósmyndasýning frá Grænlandi 4. nóvember 2006 12:45 Taflfélagið Hrókurinn hefur haft frumkvæði og starfað ötullega að skákkennslu fyrir grænlensk börn.
Í tengslum við skákmaraþon sem nú stendur yfir í Kringlunni er efnt til ljósmyndasýningar þar sem gefur að líta myndir frá Grænlandi. Forsprakki Taflfélagsins Hróksins, Hrafn Jökulsson, hefur setið við taflborðið frá því í gærmorgun en hann ætlar sér að tefla í 40 klukkustundir og ljúka um 250 skákum. Tilgangur þessa mara-þons er að vekja athygli á starfi Hróksins og félaga á Grænlandi, einkum meðal yngstu kynslóðarinnar, en þar hafa Hróksmenn meðal annars staðið fyrir skákkennslu. Áheitum hefur verið safnað og verða þau notuð til að fjármagna leiðangur Hróksins til Austur-Grænlands í nóvember. Á sýningunni eru glæsilegar myndir af stórbrotinni náttúrufegurð Grænlands sem og myndir úr félagsstarfi Hróksins og gefst gestum og gangandi tækifæri á að að kaupa myndirnar og mun ágóði þeirra renna óskertur í Grænlandssjóð Hróksins og Kalaks. Hrókurinn stendur fyrir maraþoninu í samvinnu við Vodafone, Kalak, vinafélag Íslands og Grænlands, Kátu biskupana, Skák-íþróttafélag stúdenta við Háskólann í Reykjavík, Pallaklúbbinn, Vin og Fjölni.
Menning Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira