Hammarby ræður þjálfara til starfa 28. október 2006 14:16
Sænska úrvalsdeildarliðið Hammarby réð í gær hinn 33 ára gamla Tony Gustavsson sem nýjan aðalþjálfara liðsins. Hann tekur við starfinu að tímabilinu loknu en tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Tveir Íslendingar eru hjá liðinu, þeir Pétur Marteinsson og Gunnar Þór Gunnarsson. Pétur hefur áður sagt við Fréttablaðið að hann ætli að bíða, þar til nýr þjálfari verði ráðinn, með að taka ákvörðun um hvort hann framlengi samninginn sinn við félagið um tvö ár eða haldi heim á leið. Ákvörðun hans verður að vænta bráðlega en hann hefur helst verið orðaður við KR hér heima. Hammarby er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar með 37 stig og á ekki lengur möguleika á sænska meistaratitlinum en liðið hóf mótið vel og var lengi vel í efsta sæti deildarinnar. Gustavsson er ekki nema 33 ára gamall og er fyrsti þjálfarinn í sænsku úrvalsdeildinni sem hefur menntað sig í fótboltaþjálfun á háskólastigi. Hann stýrði síðast liði Degerfors og hefur gert það í tvö ár. Sem leikmaður náði hann aldrei miklum frama og lék lengst af með neðrideildarliðum. Árið 2004, þá sem aðstoðarþjálfari hjá Degerfors, hjálpaði hann liðinu að komast upp í sænsku 1. deildina. Þess má einnig geta að Pétur Marteinsson er þremur mánuðum eldri en Gustavsson.- esá
Erlendar Fótbolti Íþróttir Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Grótta í sambandi við Davíð Smára Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sjá meira