Gjörningaveður í Reykjavík 18. október 2006 16:15 Egill Sæbjörnsson Sýnir gjörning í SAFNI ásamt hópi tónlistarfólks.
Kanadíski myndlistarmaðurinn og arkitektinn Andrew Burgess mun láta hrikta í stoðum Alþingishússins í kvöld en gjörningur hans. „Another Þing" fer fram kl. 21 í kvöld. Burgess mun varpa manngerðri eftirmynd af arkitektúr hússins á bygginguna sem þá breytir um ásýnd og verður án efa allt annað þing. Gjörningurinn varir í hálfa klukkustund en hann er liður í listahátíðinni Sequences í Reykjavík en fjölbreytt dagskrá hennar stendur til 28. október. Þrennir gjörningar fara fram í miðborginni áður en Burgess ræðst til atlögu við þinghúsið en síðdegis í dag flytur Gunnhildur Hauksdóttir myndlistarmaður gjörninginn „Oriental Influence „í Nýlistasafninu kl. 17.30 ásamt Constantin Luser, Yngve Holen og Marlie Mul en nokkru síðar fremur Snorri Ásmundsson gjörninginn „Pyramid of Love" á Austurvelli. Myndlistarmaðurinn Egill Sæbjörnsson fremur gjörning sinn „An Idear four thwoo feet & two hands & 4 corners" í SAFNI á Laugavegi í kvöld kl. 19. Auk Egils koma fram nokkrir íslenskir tónlistarmenn. Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á heimasíðunni www.sequences.is eða hjá Nýlistasafninu við Laugaveg.
Menning Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira