Baráttulög í Iðu 17. október 2006 16:45 Frá mótmælum á síðustu öld.
Á Skáldspírukvöldi Lafleur útgáfunnar í Iðuhúsinu í kvöld verður einn listamaður á sviðinu. Kristján Guðlaugssson, tónlistarmaður, vísnaskáld og baráttumaður, mun þar stíga á svið og flytja nokkur af lögum sínum. Kristján var um langt árabil áhrifamikill baráttumaður í róttækum hreyfingum hér á landi, fyrst í Fylkingunni og síðar í Samtökum Marx-Lenínista. Fór hann í fylkingarbrjósti í róttækri verkalýðsbaráttu og andófi gegn her og heimsvaldastefnu. Hann var liðtækur í mæltu og bundnu máli og dró hvergi af sér. Hann er meðal annars þekktur fyrir ljóð sem hann samdi við lag A.P. Patersons, Ísland úr Nató, herinn burt sem söngsveitin Kjarabót gerði vinsælt á sínum tíma. Kristján hefur búið í Svíþjóð um langt árabil og verið fjarri átakalínum í íslenskum stjórnmálum. Samkoman í kvöld hefst kl. 20 á efri hæð bókaverslunarinnar Iðu.
Menning Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira