Viðskipti erlent

Microsoft kynnir People-Ready

Microsoft á Íslandi ætlar í næstu viku að ráðast í mikla kynningar­herferð á People-Ready. Um er að ræða nýtt hugtak sem er afsprengi mikillar hugmyndavinnu hjá Microsoft.

Fyrsta skrefið verður morgun­fundur fyrir æðstu stjórnendur fyrirtækja sem haldinn verður á Nordica Hotel á mánudag í næstu viku. Verður honum fylgt eftir með ráðstefnu fyrir tæknistjóra og yfirmenn upplýsingamála fyrirtækja hér á landi í húsakynnum Microsoft við Engjateig 7 daginn eftir og námsstefnu fyrir tölvu- og tæknisérfræðinga undir yfirskriftinni IT Pro Readiness á miðvikudag en þar verður Windows Vista kynnt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×