Neyðarkall tíu ára drengs 10. september 2005 00:01
Þrennt bjargaðist, hjón og tíu ára sonur þeirra, þegar skemmtibátur steytti á Skarfaskeri við Viðey og sökk um klukkan tvö í fyrrinótt. Rúmlega fimmtug kona lést og rúmlega þrítugs karlmanns er enn saknað. Talið er að hann hafi reynt að kafa undir bátinn eftir konunni sem lést. Hjónunum og syni þeirra tókst að klifra upp á kjöl bátsins eftir slysið. Það varð þeim til lífs að drengurinn gat hringt úr farsíma sínum í Neyðarlínuna og hófst þá leit að fólkinu. Lögregluþjónar á gúmmíbát fundu bátinn um tuttugu mínútur yfir þrjú og björguðu þremenningunum um borð. Þá var fólkið búið að vera í sjónum í rúma klukkustund. Hjónin liggja alvarlega slösuð á sjúkrahúsi og gengust undir aðgerð í gær, drengurinn er hins vegar lítið meiddur. Sjötíu mínútum eftir að fólkinu var bjargað fannst lík konunnar sem fórst. Bogi Sigvaldason lögreglumaður var einn þeirra sem fundu þremenningana. Hann segir að ekki hafi mátt tæpara standa, báturinn hafi sokkið tíu til tuttugu mínútum eftir að fólkinu var bjargað. Bogi Sigvaldason lögreglumaðurMYND/Stöð 2
Fréttir Innlent Sjóslys á Skarfaskeri Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira