Varnarliðsmaðurinn neitar sök 26. ágúst 2005 00:01
Í ljós hefur komið að engin vitni voru að því þegar bandarísku varnarliðskonunni, sem var tvítug, voru veittir áverkar sem síðan drógu hana til dauða. Atburðurinn átti sér stað í húsnæði einhleypra varnarliðsmanna. Varnarliðskonan var með lífsmarki þegar hún fannst á sunnudagskvöldið, en lést skömmu síðar á hersjúkrahúsi á Keflavíkurflugvelli af völdum stungusára. Íslensk kona sem var gestkomandi í íbúðinni reyndist hafa verið í svefnherbergi hins grunaða meðan verknaðurinn var framinn annars staðar í íbúðinni. Varnarliðsmaðurinn hafði átt í deilum við hina látnu vegna þess að hann hafði, í félagi við annan varnarliðsmann, stolið umtalsverðum fjárhæðum af greiðslukorti hennar. Það mál komst upp. Vitorðsmanninum var vikið úr hernum, en enn átti eftir að rétta í máli hins grunaða. Rannsóknardeild sjóhersins og lögreglan á Keflavíkurflugvelli hafa haft samvinnu um rannsókn málsins. Ekki liggur fyrir hvort réttað verður í því hér á landi eða í Þýskalandi.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira