Ráðherra og ríkisendurskoðun 14. júní 2005 00:01 Ríkisendurskoðun segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hafa verið hæfan til að koma að einkavæðingu bankanna með þeim hætti sem hann gerði og reyndar gott betur. Hann hefði verið hæfur, að mati Ríkisendurskoðunar, þótt aðkoma hans hefði verið meiri en hún í raun var. Á sama tíma segir þingflokksformaður Framsóknarflokksins nokkuð meira, hann segir um þá sem hafa efast um hæfi forsætisráðherra að þeir hafi háð rógsherferð og forsætisráðherra sjálfur kveinkar sér undan umræðunni og efasemdunum sem viðraðar hafa verið síðustu daga og vikur. Ekki má gleyma að Ríkisendurskoðun er ekki dómstóll. Samt verður ekki dregið í efa að niðurstöður stofnunarinnar í máli forsætisráðherra eru klárar og efasemdir engar. Hins vegar er stjórnarandstöðu, fjölmiðlum og kjósendum heimilt hér eftir sem hingað til að spyrja, jafnvel þótt spurningarnar séu erfiðar. Halldór Ásgrímsson tengist Skinney-Þinganesi, það er óumdeilt. Fyrirtækið kom við sögu í aðdraganda sölu bankanna. Þess vegna er ekkert að því að spurt sé. Og þess vegna verður spurt áfram. Þegar er ljóst að stjórnarandstæðingar taka niðurstöðu Ríkisendurskoðunar ekki sem málalokum. Þeir taka undir með Ríkisendurskoðun að niðurstaða stofnunarinnar er ekki lagaleg. Það er einmitt það sem formaður Frjálslynda flokksins segir vanta, það er lögfræðilega úttekt. Það er ekkert að því að leitað verði eftir fleiri álitum en áliti Ríkisendurskoðunar. Málið er grafalvarlegt. Það er alvarlegt þegar grunur er um að aðkoma forsætisráðherra hafi ekki verið við hæfi. Og þótt Ríkisendurskoðun efist ekki um hæfi hans eru samt uppi efasemdir um að við hæfi hafi verið að hann kæmi að málinu. Það er ekki stórmannlegt af ráðherra, hvað þá forsætisráðherra að kveinka sér undan umræðu og gagnrýni. Enginn hefur ráðist að fjölskyldu ráðherrans, það vill svo til að fjölskylda hans á fjórðungshlut í Skinney-Þinganesi og það er meðal annars, og ekki síst, þess vegna sem spurningar um hæfi ráðherrans hafa vaknað og um leið hvort það hafi verið við hæfi að hann kæmi að málinu. Halldór Ásgrímsson var réttilega frá vegna veikinda þegar bankasalan var gerð. Eigi að síður er erfitt að ímynda sér annað en að hann hafi vitað hvaða ákvarðanir voru teknar, hvenær og af hverjum. Allir stjórnendur þekkja þannig verklag. Þess vegna er því ósvarað hvort það hafi verið við hæfi, að Halldór Ásgrímsson hafði afskipti af bankasölunni eftir að ljóst var að hann og hans fjölskylda áttu hagsmuna að gæta. Ríkisendurskoðun segir hann hafa verið hæfan og það er svo annarra að svara hvort aðkoma hans hafi verið við hæfi. Þeirri spurningu svara þeir sem kynna sér málið, hver fyrir sig. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fastir pennar Sigurjón M. Egilsson Mest lesið Hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn Gestur Þór Kristjánsson,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson,Erla Sif Markúsdóttir Skoðun Hálfrar aldar svívirða Stefán Pálsson Skoðun Óvenjulegt fólk Helgi Brynjarsson Skoðun Við erum búin að missa tökin Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hver greiðir fyrir breytingarnar? Svanfríður G. Bergvinsdóttir Skoðun Hrekkjavaka á Landakoti Kristófer Ingi Svavarsson Skoðun Stöndum vörð um Héraðsvötnin! Rakel Hinriksdóttir Skoðun Rýr húsnæðispakki Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Um Liverpool, Diogo Jota, áföll og sorgina – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson Skoðun Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn Gestur Þór Kristjánsson,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson,Erla Sif Markúsdóttir Skoðun
Um Liverpool, Diogo Jota, áföll og sorgina – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson Skoðun
Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn Gestur Þór Kristjánsson,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson,Erla Sif Markúsdóttir Skoðun
Um Liverpool, Diogo Jota, áföll og sorgina – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson Skoðun
Martin bakari flýgur heim með látum frá leikvelli auðmanna í Vatnsmýrinni Daði Rafnsson,Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun