Reynir að lokka börn í bíl sinn 25. maí 2005 00:01
Karlmaður í Reykjanesbæ hefur sést utan við grunnskóla í bænum þar sem hann hefur reynt að lokka börn í bílinn til sín með sælgæti. Lögreglan í Keflavík beinir því til foreldra að þau brýni fyrir börnum sínum að þau fari ekki upp í bifreið hjá ókunnugu fólki. Karlmaðurinn hefur reynt að ná ungum börnum upp í rauðan pallbíl eða fólksbifreið fyrir utan grunnskóla í Reykjanesbæ. Hefur hann notað sælgæti sem beitu fyrir börnin. Víkurfréttir, sem greindu frá málinu á vef sínum nú undir kvöld, hafa heimildir fyrir því að dreng í 1. bekk hafi verið boðið að stíga upp í bifreið mannsins og var honum boðið sælgæti. Drengurinn, sem var að bíða eftir föður sínum utan við skólann, flýtti sér í burtu og faldi sig inni í skólanum. Lögreglan í Keflavík hefur rannsakað málið og rætt við krakka í skólanum þar sem þetta gerðist. Óeinkennisklæddur lögreglumaður var í dag utan við Njarðvíkurskóla þegar börnin voru á leið heim úr skólanum. Lögreglan í Keflavík vill beina því til foreldra að brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bíl með ókunnugum. Eins biður Lögreglan í Keflavík alla þá sem verða varir við eitthvað vafasamt að hafa samband strax. Ekki er svo langt síðan að níu ára gömul stúlka var numin á brott í Kópavogi og skilin eftir við afleggjarann að Skálafelli. Maðurinn sem stóð að því verki var um tvítugt og á rauðum fólksbíl. Ekkert bendir til þess að málin tengist að svo stöddu.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Stuðningur allt of lítill Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Sjá meira