Kirsuberjatómatar eru ber: Kirsuberjatómatasalat með balsamediki 29. apríl 2005 00:01
Kirsuberjatómatar eru sætir og ljúffengir og henta bæði í salöt og matreiðslu. Kirsuberjatómatar eru smávaxnir tómatar, sérlega sætir og bragðgóðir og minna ef til vill fremur á ber en grænmeti. Það er ekkert skrítið þegar haft er í huga að tómatar eru í raun ber. Kirsuberjatómatar henta vel í salöt en ekki síður í ýmiss konar rétti. Yfirleitt er þó best að elda þá ekki of lengi, eða ekki lengur en svo að þeir haldi lögun. Heitur kirsuberjatómatur, til dæmis kryddaður með ferskum kryddjurtum, pipar og salti, getur verið eins og bragðsprengja og er frábært meðlæti með margs konar mat. En svo er líka gott að tína þá bara beint upp í sig, rétt eins og hver önnur ber. F16280405 kirsuberKirsuberjatómatasalat með balsamediki400 g kirsuberjatómatar 3 msk. ólífuolía1 msk. balsamedik1 tsk. sykur eða hunang1 hvítlauksgeiri, pressaðurnýmalaður pipar salthnefafylli af salatblöðum8-10 grænar ólífur, steinlausar75 g fetaostur Hver tómatur um sig er skorinn í tvennt. Olía, edik, sykur, hvítlaukur, pipar og salt sett í skál og hrært vel saman. Tómatarnir settir út í og blandað vel. Látið standa í hálftíma og hrært öðru hverju. Salatblöðin rifin eða söxuð gróft og ólífurnar skornar í sneiðar. Öllu blandað saman í skál og borið fram.Kirsuberjatómatar með hvítlauk250 g kirsuberjatómatar2-3 hvítlauksgeirar3 msk. ólífuolíanýmalaður piparsalt8-12 basilíkublöð Ofninn hitaður í 200°C. Djúp rauf skorin í hliðina á hverjum tómat, næstum inn að miðju. Hvítlauksgeirarnir skornir í þunnar sneiðar og einni sneið stungið inn í hvern tómat (best er að þrýsta ögn á þá svo að raufin opnist). Þeir eru svo settir í eldfast mót, hæfilega stórt til að rúma þá í einföldu lagi, ólífuolíu ýrt yfir og kryddað með pipar og salti. Bakað í um 15 mínútur, eða þar til tómatarnir eru vel mjúkir en halda enn lögun. Basilíkan söxuð og stráð yfir tómatana um leið og þeir eru teknir úr ofninum. Borið fram t.d. sem meðlæti með mat eða sem sósa út á pasta.Kirsuberjatómatabrauð300 ml vatn, ylvolgt1 msk. þurrger1 tsk. hunang eða sykur450 g hveiti, eða eftir þörfum1 tsk. salt3 msk. ólífuolía500 g kirsuberjatómatarsvolítið gróft salt (má sleppa) Vatn, ger og hunang eða sykur sett í skál og látið standa í nokkrar mínútur. Þá er hveiti, salti og 2 msk. af olíu bætt út í og hrært vel. Deigið á að vera fremur þykkt en þó ekki svo að hægt sé að hnoða það með höndunum. Látið lyfta sér við stofuhita í um 2 klst. Þá er því hvolft úr skálinni á pappírsklædda bökunarplötu og það mótað með hveitistráðum höndum í fremur þunnt brauð, ferhyrnt eða kringlótt. Tómötunum þrýst vel ofan í brauðið og það síðan látið lyfta sér aftur í um 25 mínútur. Á meðan er ofninn hitaður í 220°C. Tómötunum þrýst aftur ofan í brauðið, það penslað með 1 msk af ólífuolíu, dálitlu grófu salti e.t.v. stráð yfir, og það síðan bakað í 18-20 mínútur, eða þar til það hefur lyft sér vel og er fallega gullinbrúnt. Kirsuberjatómatar með hvítlauk Kirsuberjatómatabrauð
Salat Uppskriftir Mest lesið „Hann var bara draumur“ Lífið Ólöf mætti með Magnús upp á arminn Lífið „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróður sinn Lífið Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Bíó og sjónvarp Stjörnupar og hafnfirsk systkini sáu stærsta harmleik sögunnar Lífið Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Lífið Hætt að nota föt til að fela sig Tíska og hönnun Rífandi stemning í Reykjadal Lífið Klæddi sig upp sem hjákona eiginmannsins Tíska og hönnun Fleiri fréttir Létt og ljúffengt eplasalat Tiramisu-brownie að hætti Höllu Hryllilega girnilegar hrekkjavökukræsingar Dúnmjúk skinkuhorn með æðislegri fyllingu Elegant eftirréttur sem hlýjar um hjartarætur Bragðgott quesadilla á einni plötu Smjörsteikt bleikja, smjörkennt hvítvín og „alkahólíseraður Texasbúi“ „Táknmynd ítalskrar matargerðar“ Silkimjúk espresso-kaka fyrir helgina „Forréttur sem ég býð öllum upp á“ Sjá meira