Búið að slökkva eldinn 28. apríl 2005 00:01
Búið er að slökkva eldinn sem kviknaði í Framheimilinu við Safamýri síðdegis. Eldurinn logaði í útvegg og í hluta af þaki hússins. Mikill viðbúnaður var á staðnum en fólk var ekki í hættu. Eldurinn logaði undir klæðningu og það þurfti að rífa hana niður með kúbeinum og vélsögum. Niðurrifið tók töluverðan tíma en þegar því lauk gekk slökkvistarfið greiðlega fyrir sig. Nokkrir reykkafarar voru síðan kallaðir á staðinn, enda lagði mikinn reyk frá húsinu, meðal annars yfir Kringlumýrarbraut. Engin slys urðu á fólki í eldsvoðanum, eða vegna reyksins, en iðnaðarmenn voru við störf í húsinu þegar eldurinn kviknaði og einnig voru menn í fótbolta inni í íþróttasalnum. Ekki er að fullu ljóst hversu mikið tjón varð á húsinu en ætla má að töluverðar skemmdir hafi orðið á veggjum og innanstokksmunum vegna reyksins. Slökkviliðið var nýkomið úr útkalli eftir að eldhús varð alelda í íbúð í fjölbýlishúsi í Álfholti í Hafnarfirði. Þar gekk slökkvistarf vel fyrir sig.MYND/HHMYND/HHMYND/HHMYND/HHMYND/HHMYND/HH
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira