Viðskipti erlent

Vilja ekki spá verðhjöðnun strax

Gríðarmikil olíuþörf sem valdið hefur mikilli verðhækkun undanfarið virðist nú í rénun. Sérfræðingar vilja þó ekki spá verðhjöðnun strax og er jafnvel búist við að verð hækki fram á sumar vegna ferðalaga fólks yfir sumartímann. Sérfræðingar Alþjóðaorkumálastofnunarinnar segja allt benda til þess að olíuþörfin sé nú að jafnast út eftir að hafa aukist gríðarlega undanfarin tvö ár. Eldsneytisþörf í Bandaríkjunum og Asíu, einkum Kína, var ástæða aukningarinnar en teikn eru nú á lofti um að sú þörf hafi náð hámarki og segja sérfræðingarnir allt eins líklegt að rénun sé fram undan. Auk þess hafi olíubirgðir aukist. Þrátt fyrir þetta segja sérfræðingarnir of snemmt að spá verðhjöðnun á olíumörkuðum en aðeins eru liðnir nokkrir dagar frá því að verðið á olíufatinu náði sögulegu hámarki á heimsmarkaði. Í fimm daga lækkaði verðið en hækkaði á ný í gær. Það var í morgun um 54 dollarar á fatið en hjöðnunin var rakin til þess að talið er að samstaða OPEC-ríkjanna um takmarkaða framleiðsluaukningu sé brostin og að ríkin framleiði mun meiri olíu en ákveðið var. Einnig stendur fyrir dyrum að ákveða hvort að opinbert framleiðsluviðmið OPEC-ríkjanna verði hækkað um hálfa milljón tunna á dag. Sérfræðingar á mörkuðum telja enn líklegast að eldsneytisverð hækki fram á sumar á meðan ferðatíminn stendur sem hæst. Fyrst að honum loknum megi leiða líkum að því að verðlækkana sé von.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×