Brýnt að reisa nýtt fangelsi 10. apríl 2005 00:01
Fangavarðafélag Íslands skorar á stjórnvöld að standa við áform um byggingu nýs fangelsis sem koma á í staðinn fyrir bæði Hegningarhúsið við Skólavörðustíg og Fangelsið að Kópavogsbraut 17. Fyrirsjáanlegt er að föngum fjölgi á næstu árum, og því telur Fangavarðafélagið brýnt að hið nýja fangelsi rísi sem allra fyrst til þess að plássum fækki ekki þótt þessum tveimur fangelsum á höfuðborgarsvæðinu verði lokað. Jafnframt segir Fangavarðafélagið brýnt að lokið verði við frekari uppbyggingu á Litla-Hrauni, Kvíabryggju og í fangelsinu á Akureyri, enda megi kerfið augljóslega ekki við því að plássum fækki. Í áskorun sinni fagnar Fangavarðafélagið mjög þeirri stefnumörkum sem gerð hefur verið í fangelsismálum, þar sem meðal annars er lagt til að föngum verði gefinn kostur á meðferð í upphafi afplánunar. Félagið segist oft hafa bent á "nauðsyn þess að markvisst sé tekið á málefnum fanga við upphaf úttektar og að afplánunaráætlun verði gerð í samráði við fangann sjálfan."
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Innlent Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Innlent Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Erlent Fleiri fréttir Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Skýr mörk á milli hægri og vinstri Lýsa eftir konu með heilabilun Sjá meira